Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri, hefur óskað þess að vera alfarið leystur frá störfum í nefndinni og komi ekki að kjöri á verðlaunahöfum Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Viðari Eggertssyni, forseta Leiklistarsambands Íslands.
Viðar segir að Rúnar taki ákvörðunina svo enginn skuggi megi
falla á Grímuna eða hugsanlega
verðlaunahafa. Rúnar var skipaður í valnefndina af Félagi leikstjóra á Íslandi.
Í opnu bréfi frá Rúnari segir, að hann óski eftir ógildingu atkvæða sinna í seinni hluta kosninganna um verðlaunahafa Grímunnar í öllum flokkum sem valnefndin kaus um af tilnefningum sem fyrir lágu.
Sýningin Steinar í djúpinu, sem Rúnar leikstýrði og samdi, fékk 12 tilnefningar til Grímunnar. Fram kom í fjölmiðlum í kjölfar þess, að tilnefningarnar voru birtar, að Rúnar hefði tekið þátt í að velja tilnefningarnar.