Wkki mun það vera alls kostar rétt, eins og sagt var frá í gær, að Páli Óskari hefði verið kippt inn á þjóðhátíð í Eyjum eftir fésbókarþrýsting. Tilkynning um að Páll myndi koma þar fram barst í upphafi vikunnar en þó var búið að ganga frá samningum fyrir einum og hálfum mánuði. Fésbókin er yndisleg, ó já, en mikið ólíkindatól um leið.