Verið er að undirbúa að endurgera íslensku gamanþættina Næturvaktina í Hollywood fyrir bandarískt sjónvarp. Fyrirtækið Reveille Productions, sem m.a. stendur á bakvið bandarísku útgáfurnar af þáttunum The Office og Ljótu Betty, hefur keypt réttinn til að þróa Næturvaktina fyrir bandarískan markað.
Reutersfréttastofan segir frá þessu í dag. Haft er eftir Howard Owens, framkvæmdastjóra Reveille, að fyrirtækið vilji gjarnan fást við nýja vinnustaðargamanþætti í kjölfar velgengni The Office. „Þættirnir hafa sniðugt og kaldhæðið sjónarhorn sem við teljum að Bandaríkjamönnum muni líka vel."