Vinir hjónakornanna Jada Pinkett Smith og Will Smith hugsa sig trúlega tvisvar um áður en þau bjóða parinu næst í heimsókn til sín.
Jada lýsti nefnilega í viðtali á dögunum hvað þau hjónin gerðu til að viðhalda neistanum í sambandinu.
„Ég mæli eindregið með því að fólk finni sér sífellt nýja staði til að stunda kynlíf,“ sagði hún í umræddu viðtali.
„Í afmæli eða heimsókn hjá vinum, í bílnum eða á skrifstofunni, hvar sem fólki dettur í hug.“
Segir leikkonan þetta framferði þeirra hjóna gera sambandi þeirra mjög gott. Þá sé kynlíf ein aðal-ástæða þess hve góðu líkamlegu formi hún sé í.
„Besta fegrunarráðið er vatnsdrykkja, gleði og mikið kynlíf með Will Smith,“ sagði eiginkonan einnig.
Þar hafið þið það!