Júpiters spila á Nasa í kvöld og fram á nótt. Í tilkynningu frá hljómsveitinni segir að Eva Joly sé sérstakur heiðursgestur en þó er sá fyrirvari á fregninni að leit Júpitersliða verði að henni verði að bera árangur.
Fjölmiðlar eru beðnir að koma þeim skilaboðum til hennar að það bíði hennar miði á ballið í miðasölunni (plús einn) sjái hún sér fært að mæta.
Júpiters hafa nýlega komið saman aftur eftir áralangt hlé og lofa þeir balli ársins án IceSave-drunga og Árni Sveins mun einnig þeyta skífum uns langt verður gengið í Jónsmessu.