Offita er að verða sífellt meira vandamál í Noregi og vaxa þá líkurnar á að þeir holdugu fá sykursýki 2. Stjórnvöld hafa gripið til ráðstafana og vilja beita forvörnum fremur en að takast þurfi á við ónýt nýru, segir í Aftenposten.
Ástandið sagt slæmt í Nyrðri-Þrændalögum, þar eru tveir af hverjum þrem yfir tvítugu of þungir en notuð er viðmiðun sem byggist á mælingu fitustuðuls. Er þá sá sem er með fituhlutfall eða BMI yfir 25 of feitur. Kristian Midthjell prófessor, sem starfar fyrir rannsóknamiðstöðina HUNT í Verdal, segir að þetta sé hærra hlutfall en í Bandaríkjunum en telur að ástandið sé svipað í öðrum hlutum Noregs.
Hlutfall raunverulegrar offitu er þó mun hærra í Bandaríkjunum en í Nyrðri-Þrændalögum, segir Midthjell. Hann segir þróunina einkum ískyggilega hjá fólki undir 30 ára aldri.