Nær 400 karlmenn í Suður-Kóreu hafa keppt um hönd kaupsýslukonu sem talin er eiga um 18 milljónir dollara eða nær 2.4 milljarða króna. Konan setti auglýsingu á vefinn Sunoo sem er eins konar hjónbandsmiðlun.
,,Hún stýrir fyrirtæki og var of önnum kafin til að geta fundið sér eiginmann sjálf," sagði talsmaður Sunoo. Konan er 49 ára og á vefnum er hún sögð vera ,,grönn, kvenleg og framkvæmdasöm kona" sem leiti að sálufélaga. Átta karlar eru komnir í úrslit og eru þeir á aldrinum 37-49 ára. Meðal þeirra eru kennarar og bankastarfsmenn.
Konan, sem er áhugasöm um íþróttir og ferðalög, hyggst eiga viðtöl við þá sem komust í úrslit þangað til hún finnur þann rétta sem á að vera ,,hjartahlýr"og enginn gosi.