Fótboltakappinn Cristiano Ronaldo hefur lýst því yfir að hann eigi ekki í ástarsambandi við bandarísku sjónvarpsstjörnuna Paris Hilton.
„Hún er mjög flott stelpa og við áttum mjög gott samtal. Ég er ungur maður og Paris er ung dama og það að við skulum tala saman á næturklúbbi er bara það sem venjulegt fólk á okkar aldri gerir. Hún býr mörg þúsund mílur í burtu og er mjög upptekin og ég er upptekinn í Madrid þannig að ég er ekki viss um að við fáum tækifæri til að hittast aftur," segir hann. „Ég er bara að njóta sem best þess stutta sumarfrís sem ég fæ.“
Mikið var gert úr því er myndir náðust af stjörnunum í innilegum samræðum á skemmtistað í Los Angeles fyrir tveimur vikum og af Ronaldo yfirgefa heimili systur Paris undir morgun.
Skömmu áður hafði Paris slitið sambandi sínu við leikarann Doug Reinhardt en fjölskylda hennar telur hann einungis hafa viljað notfæra sér hana sjálfum sér til framdráttar.