Brennið þið, vitar! er myndlistarsýning í fjórum
vitum umhverfis landið. Þaðan eru send leiftur í ýmsar áttir, meðal
annars hingað á mbl.is. Í dag beinist ljósið að Unnari Erni, sem sýnir í Dalatangavita á Austfjörðum.
Unnar Örn skoðar þær hefðir og venjur sem mótast hafa í skrásetningu fólks á umhverfi sínu. Hann þræðir stofnanir og söfn og notar innviði þeirra í verk sem draga dám af uppröðun og flokkun raunveruleikans.
Þegar hann setti upp sýninguna „Coup d’;;;;;;;;;Etat” í Suðsuðvestur árið 2007 vann hann í samstarfi við minjasafn Reykjanesbæjar og skeytti saman á eftirminnilegan máta staðbundinni menningararfleifð og táknmyndum nýfrjálshyggjunnar.
Sýning Unnars verður í Dalatangavita, sem er á fáförnum en ægifögrum slóðum út af Mjóafirði á Austfjörðum. Unnar Örn er fæddur árið 1974 og nam myndlist í Reykjavík og Malmö.
Sýningin
er verkefni Listahátíðar í Reykjavík 2009, unnið í samstarfi við
Siglingastofnun Íslands og menningarfulltrúa viðkomandi sveitarfélaga.
Með sýningarstjórn fara Markús Þór Andrésson og Dorothée
Kirch.