Teiknimyndin Ice Age: Return of the Dinosaurs skaust í efsta sæti yfir vinsælustu myndirnar í kvikmyndahúsum vestanhafs um helgina en þurfti að deila sætinu með Transformers: Revenge of the Fallen samkvæmt fyrstu tölum um aðsókn í kvikmyndahús um helgina. Ice Age var frumsýnd fyrir helgi en myndin er sú þriðja í Ice Age röðinni.
Meðal þeirra sem tala fyrir dýrin í myndinni eru Queen Latifah og Dennis Leary. Alls skilaði myndin 42,5 milljónum dala í kassann um helgina en um langa helgi er að ræða þar sem föstudagurinn var frídagur vegna þjóðhátíðar Bandaríkjamanna á laugardag.
Þriðja vinsælasta mynd helgarinnar er Public Enemies, með Johnny Depp í aðalhlutverki og í því fjórða er The Proposal, rómantísk gamanmynd með Söndru Bullock í aðalhlutverki.