Helgi Björnsson ætlaði að halda tónleika á Hótel Valhöll síðastliðinn föstudag en sem kunnugt er varð ekkert af því þar sem Valhöll brann til kaldra kola þann sama dag. Helgi lætur það þó ekki stöðva sig og ætlar að halda tónleika við brunarústirnar á næstunni. Hann styður uppbyggingu á svæðinu sem hagnast almenningi.