Valdís Óskarsdóttir leikstjóri leitar nú að hjólhýsum fyrir nýjustu kvikmynd sína sem mun fjalla á gamansaman hátt um fólk sem býr í hjólhýsahverfi. Ráðgert er að smíða hverfið í Heiðmörk og leitar nú Valdís og framleiðslufyrirtæki hennar eftir hjólhýsum af öllum stærðum og gerðum fyrir myndina.