Ingibjörg Egilsdóttir, sem hafnaði í öðru sæti í Ungfrú Íslandi 2008, er nú stödd á Bahamaeyjum þar sem keppnin um Ungfrú alheim fer fram. Ingibjörg keppir þar um titilinn við stúlkur frá 83 löndum en úrslitakvöldið sjálft er 23. ágúst næstkomandi. Þá mun Ungfrú alheimur 2008, Dayana Mendoza frá Venesúela, krýna arftaka sinn. Myndin hér að ofan af Ingibjörgu var tekin um síðustu helgi í kristaltærum sjónum á Bahama.