Tékkneski kvikmyndagerðarmaðurinn Milos Forman verður heiðursgestur á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem hefst hinn 17. september næstkomandi.
Forman er á meðal virtustu kvikmyndagerðarmanna heims, og hefur hann hlotið Óskarsverðlaunin í tvígang: fyrir One Flew Over the Cuckoo's Nest árið 1976 og Amadeus árið 1985. Þá var hann tilnefndur til verðlaunanna árið 1997 fyrir leikstjórn kvikmyndarinnar The People vs. Larry Flynt.
Nokkrar mynda Formans verða sýndar á hátíðinni í september, auk þess sem hann mun halda fyrirlestur um myndir sínar.