Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur söngvaranum Bobby Brown eftir að hann mætti ekki í dómssal þar sem meðal annars átti að taka fyrir meðlagsgreiðslur sem hann skuldar.
Dómarinn, Christina Harms, fyrirskipaði handtöku Brown ef hann lætur sjá sig í Massachusetts ríki. Brown skuldar 45 þúsund dali í meðlag með dætrum sínum tveim sem hann á með fyrrum unnustu, Kim Ward. Hann hefur áður þurft að dúsa í fangelsi fyrir meðlagsskuldir, að því er fram kemur á vef BBC.
Bobby Brown var kvæntur söngkonunni Whitney Houston í fimmtán ár. Þau eiga eina dóttur saman.