Björk Guðmundsdóttir og Matthew Barney hafa sett hús sitt í Snedens Landing í New York á sölu, að því er kemur fram á bandarískum fasteigna- og tónlistarfréttavefjum í kvöld.
Í húsinu eru 6 stór svefnherbergi og fjögur baðherbergi. Einnig hefur stóru herbergi í húsinu verið breytt í vinnustofu með glerveggjum.
Verðið er 1,7 milljónir dala, jafnvirði 220 milljóna króna, en einnig er hægt að leigja húsið fyrir 7000 dali á mánuði.