Bandaríska hipp-hopp sveitin Black Eyed Peas hefur sett met á bandaríska Billboard vinsældalistanum en sveitin hefur nú átt lög í efsta sæti lagalistans í 20 vikur samfellt. Um er að ræða lögin Boom Boom Pow og I Gotta Feeling.
Þetta kemur nokkuð á óvart því Boom Boom Pow var fyrsta lagið, sem sveitin kom í efsta sæti á smáskífulista Billboard. Fyrsta breiðskipa Black Eyed Peas kom út árið 2003.
Lögin tvö hafa nú selst á netinu í nærri 5 milljónum eintaka. Þá hefur breiðskífa Black Eyed Peas, The E.N.D., selst í rúmlega 900 þúsund eintökum frá því hún kom út í júní.