Bandaríkjamenn sem hafa farið illa út úr kreppunni leita nú í örvæntingu að einhverja til að koma í verð. Sumir reyna að selja legstaði sem þeir hafa tryggt sér á góðum stað í kirkjugarðinum og greitt frægur fyrir í góðærinu.
Aftenposten segir frá Debbie Jenkins sem rakst á skjal sem staðfesti eignarhald hennar á grafreit í Fort Lincoln í Prince Geoegr-sýslu í Maryland, skammt frá höfuðborginni Washington. Jenkins ákvað strax að auglýsa reitinn á ókeypis auglýsingasíðu. ,,Verið viðbúin! Fort Lincoln, Garður postulanna. Óvænt tækifæri í þessum hluta garðsins þar sem búið er að selja alla reiti."
Hún sagði reiti af þessu tagi vera selda á 8000 dollara en var reiðubúin að sætta sig við hálfvirði.