Bandaríska leikkonan Megan Fox hefur verið ráðin í hlutverk Kattarkonunnar í næstu kvikmynd um Leðurblökumanninn. Fox, sem er 23 ára gömul, mun því leika við hlið þeirra Christian Bale og Sir Michael Caine í myndinni, sem verður sjálfstætt framhald hinnar vinsælu The Dark Knight. Leikstjóri myndarinnar verður Christopher Nolan og er gert ráð fyrir að hún verði frumsýnd árið 2011.
Fox fetar þar með í fótspor Michelle Pfeiffer og Halle Berry sem báðar hafa leikið konuna sem kennd er við ketti. Áður hafði verið talið að Angelina Jolie myndi hreppa hnossið.