Hið vinsæla lag „Sex on Fire“ með Kings of Leon fjallar um kynsjúkdóma, eða svo segja amerísku rokkararnir. Hugmyndin að textanum mun hafa sprottið af því að einn hljómsveitarmeðlimur fékk kynsjúkdóm eftir að hafa sofið hjá stelpu.
Þegar þeir voru spurðir hvort textinn, sem inniheldur m.a. línuna „hot as a fever, rattling bones“, væri um frábært kynlíf svaraði einn hljómsveitarmeðlimur: „Reyndar er hann um kynsjúkdóma, þeir veittu okkur innblásturinn.“
Annars er það af Kings of Leon að frétta að söngvarinn, Caleb Followill, hefur samþykkt að vera dómari í bandaríska matreiðsluþættinum Iron Chef. Hinir í bandinu munu vera mjög hrifnir af þessari ákvörðun Followills enda allir miklir matmenn, að eigin sögn.