Alexander Freyr Einarsson hefur sett upp síðu á Facebook þar sem hann hvetur til þess að minnisvarði um Helga Hóseasson verði settur upp á Langholtsvegi. Um fjögur þúsund manns hafa skráð sig inn á síðuna. Um 5.500 eru skráðir aðdáendur annarrar síðu um mótmælanda Íslands sem lést í gær.
Alexander Freyr sagði í samtali við mbl.is að hann sé alinn upp í Langholtshverfinu þar sem Helgi var hluti af umhverfinu. Hann hvetur alla til þess að skrá sig á síðuna og vonast til þess að borgaryfirvöld reisi minnisvarða um Helga á horni Langholtsvegar og Holtsvegar þar sem hann stóð vaktina flesta daga ársins.