Winnipeg í Kanada ætlar að nefna götu í miðborginni eftir Vestur-Íslendingnum William Stephenson, einum fremsta njósnaforingja Breta í síðari heimsstyrjöldinni og fyrirmynd Ians Flemings að njósnaranum James Bond.
Óragsfélagið í Winnipeg lagði til í vor að ákveðin gata yrði nefnd eftir Stephenson. Þegar til kom reyndist það of kostnaðarsamt þar sem mörg fyrirtæki eru við götuna. Þá voru tvær aðrar götur í nágrenninu tilnefndar.