Bandaríska söngkonan Mariah Carey varð fyrir því óláni fyrir skömmu að hundurinn hennar pissaði á hana.
Söngkonan segir frá atvikinu á Twitter-síðu sinni: „Sko, Cha Cha pissaði á gólfið í búningsherberginu mínu og ákvað svo að stökkva á mig þar sem ég sat og var að mála mig og halda áfram þar. Mjög flott allt saman,“ skrifar Carey sem mun hafa verið að undirbúa sig fyrir tónleikahald þegar óhappið varð, en hún hélt tvenna tónleika í Las Vegas núna um helgina.
Um er að ræða hund af tegundinni Jack Russell terrier sem eiginmaður söngkonunnar, Nick Cannon, gaf henni á eins árs brúðkaupsafmæli þeirra í maí.