Yfirvöld í Úkraínu heimila ekki poppstjörnunni Elton John að ættleiða þaðan dreng. Söngvarinn og lagasmiðurinn er of gamall. Auk þess viðurkenna yfirvöld í Úkraínu ekki hjónabönd samkynhneigðra.
Elton John, sem er 62 ára, hefur í mörg ár búið með David Furnish og gengu þeir í hjónaband árið 2005. Þeir hittu litla drenginn sem þá langar til þess að ættleiða á barnaheimili en þar dvelja mörg börn sem hafa misst foreldra sína úr alnæmi.
Elton John hefur styrkt alnæmissjúklinga í Úkraínu.