Bandaríski rapparinn Kanye West hefur boðist afsökunar á hegðun sinni þegar myndbandaverðlaun sjónvarpsstöðvarinnar MTV voru veitt í New York í gærkvöldi.
Rapparinn rauk upp á svið þegar sveitasöngkonan Taylor Swift tók við verðlaunum fyrir besta myndband söngkonu. Lýsti Kanye því yfir, að Beyoncé hefði átt að fá verðlaunin. Beyoncé fékk raunar verðlaun í öðrum flokki og hún bauð Swift upp á svið þegar hún tók við verðlaununum.
Margir helstu popptónlistarmenn nútímans voru viðstaddir verðlaunaafhendinguna. Michaels Jacksons, sem lést í sumar var minnst með ýmsum hætti og sagði Madonna m.a. að sér þætti að hún hefði „yfirgefið" Jackson. Janet systir Jacksons var meðal þeirra sem komu fram á hátíðinni.
Meðal annarra verðlaunahafa voru Britney Spears, Green Day, Eminem og Lady Gaga.