Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir úr Þingeyjarsýslu sigruðu í kvöld Jeff Who eftir harða baráttu í lokaþætti Popppunkts í Sjónvarpinu. Keppni hljómsveitanna var jöfn lengstum, en Ljótu hálfvitarnir tryggðu sér sigurinn á lokasprettinum. Þegar upp var staðið unnu hálfvitarnir með 46 stigum gegn 37.
Páll Óskar Hjálmtýsson úr liði Milljónamæringanna, sem unnu árið 2005, þegar þátturinn var á Skjá einum, afhenti veglegan bikar, sem nú verður farandbikar keppninnar.