Winehouse aftur í vínið

Amy Winehouse.
Amy Winehouse.

Söngkonan Amy Winehouse ber nafn með rentu, en líkami hennar er sem fullt hús af víni, svona alla jafna. Winehouse hefur dvalið langdvölum á Bahamaeyjum til að forðast það að stíga í vænginn við Bakkus en um leið og hún stígur fæti aftur inn í heimaborg sína, London, fer dansinn að duna á nýjan leik.

Þannig fór hún á fyllerí á fimmtudagskvöldið ásamt Tyler James, fyrrverandi unnusta en núverandi vini. Til allrar hamingju endaði kvöldið ekki með ósköpum og Winehouse komst nálægt einhverju sem mætti kalla hófdrykkju. Batnandi fólki er best að lifa og Winehouse eldist greinilega vel... líkt og gott vín.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir