Friðrik Þór Friðriksson poppaði heil ósköp í gærkvöldi áður en hann tók á móti bíógestum í stofunni heima. Hann var einn af þremur íslenskum kvikmyndaleikstjórum sem buðu fólki í gær að horfa á uppáhaldsmyndirnar sínar heima hjá sér.
Viðburður þessi var í tengslum við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, og stóð gestum til boða að spjalla við leikstjórana eftir sýningu myndanna.