Tónlistarmaðurinn Marilyn Manson er með svínaflensu ef marka má blogg hans á MySpace. Þar grínast hann með að hafa verið formlega greindur með inflúensuna. Á hann að vera frekar vel haldinn og ekki í lífshættu.
Manson er ekki sá eini sem hefur verið greindur með svínaflesnu úr hópi fræga fólksins. Leikarinn Rupert Grint, sem leikur Ron Weasley í Harry Potter myndunum var með svínaflensu í sumar en hann veiktist illa af flensunni og taldi sjálfur um tíma að hann myndi deyja.
Söngvarinn Tom Meighan var fluttur með hraði á sjúkrahús í Sydney í Ástralíu nýverið þar sem hann var greindur með H1N1.