Borgarstjóri Vínarborgar í Austurríki hefur viðurkennt að minningartónleikar um Michael Jackson, sem til stóð að halda í borginni, hafi verið illa skipulagðir.
Michael Haupl, borgarstjóri Vínar, sagði við borgarráðsmenn að tónleikarnir hefðu getað orðið mjög athyglisverðir, þ.e. hefðu þeir verið skipulagðir með almennilegum hætti. Svo hefði ekki verið.
Skipuleggjendur tónleikanna hafa aflýst þeim, en til stóð að þeir færu fram á morgun. Illa gekk að fá stjörnur til að koma fram á tónleikunum.
Nú er stefnt að því að halda minningartónleika um Jackson í London á næsta ári.