Olivia Newton-John hefur séð geimskip. Grease-leikkonan segir að hún hafi séð fljúgandi silfurlitaðan hlut á ótrúlegum hraða þegar hún var unglingur. Hún er sannfærð um að flestir Bretar deili með henni trúnni á líf í geimnum.
„Flestir á Englandi telja að möguleiki sé á að geimverur séu til. Fyrir tuttugu árum hefði enginn trúað því. Ég hef séð svo miklar sviptingar í trú í gegnum tíðina,“ sagði hin sextuga Newton-John í viðtali við The Sun.
Hún er ekki eina stjarnan sem segist hafa séð fljúgandi furðuhluti. Söngvarinn Robbie Williams trúir heitt á líf í geimnum og sá fljúgandi furðuhlut þegar hann var í sólbaði í Kaliforníu fyrir nokkrum árum. Hann hefur líka samið lag um samskipti sín við geimverur.