Rapparinn og leikarinn Clifford Smith, betur þekktur sem Method Man, var handtekinn í gær og á yfir höfði sér ákæru fyrir að borga ekki skatta árin 2004-2007. Smith skuldar New York ríki rúmar 4 milljónir kr.
Smith, sem hefur unnið Grammy verðlaun og er einn upprunalegu meðlima Wu-Tang Clan, var handtekinn á heimili sínu á Staten Island. Hann á yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi.