Gefur kærastanum 340 millj. kr. íbúð

Madonna
Madonna Matt Sayles

Hermt er að Madonna ætli að kaupa 340 milljóna kr. íbúð í New York handa kærasta sínum Jesus Luz. Íbúðin verður nálægt húsi Madonnu sem hún keypti nýlega fyrir 5 milljarða.

Breska dagblaðið The Sun hefur eftir heimildarmanni að Madonna hafi beðið fasteignasala um að leita að hinni fullkomnu íbúð handa Luz í sama hverfi og húsið sem hún flutti nýverið í. Hún setti þau skilyrði að íbúðin mætti ekki kosta meira en 340 milljónir kr. og yrði að vera í göngufjarlægð frá húsi hennar. Madonna ætlar að borga reikninginn en um leið og íbúðin hefur verið keypt verður hún í eigu Luz.

„Hún var ekki að grínast þegar hún sagði honum að hann þyrfti aldrei aftur að hafa áhyggjur af peningum.“ Madonna hefur m.a. borgað fyrir hann nám í dýrum skóla og gefið honum tónlistargræjur fyrir 6 milljónir kr. Þar að auki ku hún vera með hann á launaskrá, hjálpaði honum að endurnýja landvistarleyfi sitt í Bandaríkjunum og að fá verkefni í fyrirsætubransanum. Madonna ætlar sér þó ekki að giftast Luz þar sem hún óttast um auðævi sín. Þess í stað ætlar parið að halda athöfn þar sem það staðfestir samband sitt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Að afla sér tekna merkir líklega að maður þurfi að leggja á sig það sama og margir aðrir, en með sínum einstaka hætti. Peningamálin ættu að komast í eðlilegt horf á næstunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnar Jónasson
2
Harry Whittaker og Lucinda Riley
3
Jojo Moyes
4
Sólveig Pálsdóttir
5
Carin Gerhardsen