Sveitarstjórinn hrynheiti Grímur Atlason situr ekki auðum höndum í Dölunum frekar en fyrri daginn en föstudaginn næstkomandi, hinn 23., blæs hann til rokkhátíðarinnar Sláturs í nýju Reiðhöllinni í Búðardal.
Fram koma m.a. Dr. Gunni, Retro Stefson og FM Belfast og fá sveitirnar greitt í dilkum og sviðakjömmum. Meðfram þessu verður landsbyggðarvæn dagskrá; hrútasýning, hagyrðingakvöld og Íslandsmeistaramótið í rúningi m.a.