Guðmundur Steingrímsson verður áttræður hinn 19. október. Af því tilefni og vegna útkomu bókarinnar Papa Jazz verður útgáfuhátíð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 15-17 sunnudaginn 18. okt.
Þar verða djasstónleikar þar sem fram koma auk Guðmundar Árni Ísleifsson píanóleikari, Bjarni Sveinbjörnsson bassaleikari, Björn Thoroddsen gítarleikari, Carl Möller píanóleikari, Ólafur Gaukur gítarleikari, Svanhildur Jakobsdóttir söngkona, Vigdís Ásgeirsdóttir söngkona og fleiri.