Breski tónlistarmaðurinn Morrissey var fluttur á sjúkrahús í Swindon á Englandi eftir að hann né niður þar sem hann hélt tónleika í borginni. Morrissey, sem er fimmtugur að aldri, var að ljúka við fyrsta lagið á tónleikunum þegar þetta gerðist.
Morrissey, sem er á tónleikaferð um heiminn, hefur þegar aflýst nokkrum tónleikum í ár vegna veikinda.