Leik- og söngkonan Ashlee Simpson mun ekki sjást meira í sjónvarpsþáttunum Melrose Place sem nú er verið að sýna á Skjá einum.
Simpson hefur farið með hlutverk Violet í þessum vinsælu þáttum síðan í mars en nú hafa framleiðendurnir ákveðið að endurnýja ekki samninginn við hana og meðleikara hennar, Colin Egglesfield.