Breski tónlistarmaðurinn Sir Elton John var lagður inn á sjúkrahús í Lundúnum á föstudag en hann var þá illa haldinn bæði af inflúensu og E.coli sýkingu.
Að sögn Sky fréttastofunnar hafa læknar ráðlagt Elton John að fresta tónleikaferðalagi, sem hann ætlaði að fara í um Bandaríkin í þessari viku ásamt Billy Joel.
Vefur tímaritsins The People hefur eftir talsmanni söngvarans að Elton John sé nú á batavegi.