Sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason hyggst færa í letur endurminningar athafnakonunnar Jónínu Benediktsdóttur en ekki er enn ljóst hvenær bókin kemur út og ekki hefur enn verið samið við forleggjara. Þau áttu fund í gær og er Sölvi þegar kominn með mikið af gögnum til að vinna úr.