Tónlistarmaðurinn Damien Rice er staddur hér á landi. Tilgangur ferðarinnar snýst um að taka upp lög í hljóðveri, í gær hélt hann tónleika og í dag fór hann svo í heimsókn í leikskólann Laufásborg. Þar sungu bæði krakkarnir fyrir hann og öfugt.
Að loknum söngnum aðstoðuðu Rice og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, börnin á Laufásborg að gróðursetja fyrstu trén í Laufásborgarlundinn.