Harry Potter leikarinn Daniel Radcliffe neitar því staðfastlega að hann hafi verið myndaður við að reykja kannabis, líkt og breska dagblaðið Daily Mirror heldur fram. Blaðið birti myndir, sem sagðar voru af leikaranum, en einhver sem átti að hafa verið í sömu veislu og leikarinn tók myndirnar.
Talskona leikarans segir að leikarinn reyki venjulega vindlinga en hann hafi ekki reykt neitt annað en þá í umræddu partýi í Lundúnum.
Radcliffe er nú við upptökur á tveimur síðustu kvikmyndunum um galdrastrákinn Harry Potter. Talskona hans segir að þau neiti staðfastlega þeim ásökunum sem fram komu í Daily Mirror. Þau séu að íhuga stöðu sína og munu grípa til viðeigandi ráðstafana.