Önnur plata spútniksveitarinnar Hjaltalín kemur út á mánudaginn, en
óhætt er að segja að eftirvænting eftir gripnum sé mikil. Jafna fróðir
stemningunni við þá sem í gangi var í kringum Ágætis byrjun Sigur
Rósar sem út kom fyrir rúmum tíu árum síðan.
Hjaltalín hélt tónleika á Rósenberg í gær en formlegir útgáfutónleikar
vegna plötunnar nýju, sem kallast Terminal, verða í Loftkastalanum,
miðvikudaginn 25. nóvember.
Ítarlegt viðtal við Hjaltalín verður að finna í Laugardagsblaði Morgunblaðsins.