Sadie Frost segir „allt"

Saide Frost
Saide Frost

Leikkonan fyrrverandi Sadie Frost, sem nú starfar sem tískuhönnuður, ætlar að segja „allt" um samband sitt við leikarann Jude Law í ævisögu sinni. Frost á þrjú börn með Law en stormasömu sambandi þeirra lauk með skilnaði í október 2003 en þau voru gift í sex ár.

Eru miklar væntingar til bókarinnar í slúðurheimum enda þykir líklegt að besta vinkona Frost, fyrirsætan Kate Moss, komi fyrir í bókinni og hjónaband Frost og Gary Kemp, söngvara Spandau Ballet. Frost og Kemp eiga einn son saman Finley sem er 19 ára gamall. 

Útgefandinn John Blake hefur staðfest að Frost hafi selt endurminningar sínar fyrir afar háa fjárhæð og bætir við að ekki sé hægt að óska sér meir hvað varðar upplýsingar sem opinberaðar verða í ævisögunni.

Frost, sem er 44 ára, mun væntanlega fjalla um æskuárin í ævisögunni en hún er dóttir listamannsins David Vaughn og leikkonunnar Mary Davidson.

Jude Law
Jude Law AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir