Samtalsþættir Oprah Winfrey hætta senn

Oprah (t.h.) ásamt Michelle Obama forsetafrú.
Oprah (t.h.) ásamt Michelle Obama forsetafrú.

Samtalsþættir bandarísku sjónvarpskonunnar Oprah Winfrey renna skeið sitt á enda árið 2011 en þá verður aldarfjórðungur liðinn frá fyrsta þættinum. 

Winfrey mun gera grein fyrir ákvörðun sinni í þætti sínum í kvöld en talið er að hún ætli að einbeita sér að rekstri nýrrar sjónvarpsstöðvar sem hún sjálf á. Stöðin fer í loftið 2011 og hefur fengið heitið OWN, eða Oprah Winfrey Network.

Oprah Winfrey er ríkasta og áhrifamesta kona Bandaríkjanna og margfaldur milljarðamæringur. Samtalsþætti hennar er líkt við stofnun en á hann horfa um sjö milljónir manna í hvert sinn að jafnaði.

Stuðningur hennar við framboð Baraks Obama er talið hafa ráðið miklu um kjör hans sem forseta Bandaríkjanna.

Og þótt samtalsþættirnir renni sitt skeið á enda hefur hún að nógu að hverfa. Auk sjónvarpsstöðvarinnar heyra veldi Winfrey til bæði tímarit og útvarpsþáttur.


Oprah við upptökur á þætti nú í haust.
Oprah við upptökur á þætti nú í haust. reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Tove Alsterdal
5
Torill Thorup