Stærsta piparkökuhús landsins er í uppsiglingu á Eyrarbakka. Húsið er um fimmtán fermetrar og á tveimur hæðum.
„Baksturinn er á fullu en HP-flatkökur á Selfossi sjá um að baka stórar piparkökuskífur sem húsgrindin verður klædd með. Við ætlum að fá krakkana úr skólunum til að koma hingað og skreyta skífurnar og festa þær utan á grindina og búa þannig til manngengt piparkökuhús,“ segir Anna S. Árnadóttir á Gónhól, menningar- og kaffihúsi á Eyrarbakka.
Piparkökuhúsið er fyrsta húsið í litlu verslunarþorpi sem verið er að byggja inni í gamla saltfiskhúsinu á Eyrarbakka.Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.