Leikarinn Jim Carrey er að verða afi en dóttir hans, Jane, á von á sínu fyrsta barni fljótlega. Unnusta Carrey, Jenny McCarthy, sem er einungis 37 ára, er afar spennt að verða amma að eigin sögn. Hún viðurkennir að það sé samt dálítið skrýtið að vera kölluð amma svo ung að árum.
Jenny, sem á sjö ára gamlan son af fyrra sambandi, heitir því að hún verði lítið ömmuleg í útliti, að minnsta kosti miðað við hvernig ömmum er oft lýst í útliti.
Carrey er 47 ára en Jane dóttir hans giftist nýverið rokkaranum Alex Santana.