Bandaríski leikarinn John Larquett hrósar Stefáni Karli í hástert en þeir leika saman í leikritinu um þegar trölli stal jólunum í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Larquett er þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum um Boston Legal og Law and Order, special victims unit sem sýndir eru á SkjáEinum.
Sýningar á Trölla eru nú í fullum gangi í Suður Kaliforníu en frammistaða Stefáns hefur vakið nokkra athygli og fallið í góðan jarðveg meðal gagnrýnanda.