Kona sem var á heimili Tiger Woods í Flórída var flutt í skyndingu á sjúkrahús í nótt. Samkvæmt frétt á vef People tímaritsins var haft samband við neyðarlínu klukkan 2:36 að staðartíma, 7:36 að íslenskum tíma. Samkvæmt sjónarvottum var konan ljóshærð og fékk hún súrefnisgjöf á sjúkrabörum á leið út í sjúkrabílinn.
Var hún flutt á Health Central sjúkrahúsið. Fréttir herma að eiginkona Woods, hin sænska Elin Nordegren, hafi flutt út af heimili þeirra hjóna. Kemur fram á vefnum TMZ að konan sem var flutt á sjúkrahús sé miðaldra og að móðir Nordegren sé hjá dóttur sinni í Bandaríkjunum.