Leikkonan Catherine Zeta-Jones varð fyrir því óhappi í liðinni viku að opna japanskan slopp sem hún var íklædd í leikritinu A Little Night Music á við Broadway í New York of mikið þannig að brjóst hennar blöstu við áhorfendum.
Haft er eftir einum leikhúsgesta að hann undrist ekki eftir þá sýn hvers vegna Michael Douglas, eiginmaður Zetu-Jones, sé alltaf svo hamingjusamur að sjá.
Hins vegar hafa gagnrýnendur ekki tekið leik hennar og söng í verkinu og segja jafnvel að það sé henni ofviða að leika og syngja á sama tíma.
Leikkonan sagðist nýverið vera óörugg með sjálfa sig og útlit.