Paris Hilton langar að giftast á þessu ári.
Djammdrottningin hefur gefið það út að hana langar að eyða restinni af ævinni með núverandi kærasta sínum, Doug Reinhardt, hún segir að þeirra frábæra samband hafi haft góð áhrif á hana. „Ég myndi ekki útiloka brúðkaup á árinu miðað við hvernig hlutirnir ganga hjá okkur. Ég sé mjög bjarta og hamingjuríka framtíð,“ sagði Paris.
„Hann hefur sýnt mér hvernig það er að vera raunverulega ástfanginn. Hann kenndi mér líka að þroskast og vera meira heima, minnka þetta skemmtanalíf.